Eignalind fasteignasala
Eignalind fasteignasala Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma
857-8392)
kynnir Einholt 8E, 603 Akureyri. Raðhús á tveimur hæðum með ágætis timbur verönd. Góð aðkoma er að eigninni og stæði framan við eign. Eignin er laus til afhendingar.Nánari lýsing á eign:Neðri hæð.Forstofa er með flísum á gólfi og fataslá.
Þvottaherbergi inn af forstofu.
Gangur með parket á gólfi og er stigi upp á efri hæð eignar við forstofu.
Geymsla er milli forstofu og eldhúss.
Eldhús er með flísar á gólfi, efri- og neðri skápum.
Lítið
salerni er á gangi við stofu.
Stofan er með parket á gólfi og þar er útgengt út á timbur verönd með skúr á lóð.
Efri hæð.Komið er upp stiga í gang með parket á gólfi.
Hjónaherbergið er með dúk á gólfi og ágætis skápaplássi.
Þrjú barnaherbergi eru í eigninni, öll með parkett á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtu, handklæðaofni, ágætis innréttingu og flísum á gólfi.
Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og þekkir því hvorki né getur borið ábyrgð á ástandi hennar umfram það sem sjá má við venjulega sjónskoðun.
Kaupendum er því bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel og leita sér eftir atvikum aðstoðar sérfróðra manna við skoðun.Annað:
-Ágætis timbur verönd er á baklóð eignar.
-Eignin er í einkasölu.
Nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali á netfangið [email protected] eða í síma 857-8392.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ef þú ert í söluhugleiðingum kíktu þá á
www.verdmat.is